13desember
Eitt af því sem hefur verið að hrjá mig í skammdeginu er leti og lítil löngun til að gera neitt nema éta og horfa á sónvarpið. Þetta gæti alveg verið í lagi ef ég hefði nú ekkert betra að gera... en því miður þá ætti ég frekar að vera að læra fyrir þessu blessuðu próf. Nú vill svo til að ég fékk einnar viku frí frá próflestri og nú þegar því er lokið er einstaklega erfitt að rífa sig uppúr letinni og læra óreglulegar sagnir og svoleiðis skemmtilegheit...
Í fyrramálið þarf ég svo að vakna kl hálf 7 takk fyrir eftir að hafa sofið til 1 á hverjum degi í viku og kvíði ég nú aðeins fyrir þessu.. hversvegna í ósköpunum fæ ég það af mér að vera svona gífurlega kærulaus... ?
æji en svona verður þetta bara að vera og eftir morgundaginn get ég leift mér að vera eins kærulaus og löt og ég vil........Þangað til að skólinn byrjar aftur..
en ætli ég reyni ekki að læra aðeins meira og redda rassgatinu á mér eftir þessa leti
Kristín kærulausa....
11desember
heil og sæl... ég er mætt enn á ný...
núna eru allir á fullu í prófum og ég er nú eiginlega bara voða lítið búin að finna fyrir þessu... 4 próf,fór á þriðjudaginn og svo er ég bara búin að vera hérna heima í leti . Fer ekki í næsta próf fyrr en á miðvikudaginn og er það einnig það síðasta. Og þá tekur við hið ljúfa jólafrí:)
Við erum ekki neitt byrjuð að undirbúa jólin hérna heima... ekki neitt bakað og ekki neitt skreytt... þannig vill nefnilega til að við stöndum í því ferli að skipta um eldhúsinnréttingu og er allt í ryki og drasli heima... en þetta fer nú að verða búin og þá verður sko skreytt og gert huggulegt í skammdeginu.
Á fimmtudaginn ætla ég svo í bæinn til Þórunnar og við ætlum að fagna prófalokunum með jólagjafakaupum og kaffihúsaferðum. Við ætlum að eyða miklum tíma saman þar sem við höfum varla hist síðan skólinn byrjaði... svo á sunnudaginn næsta er fjölskyldu laufabrauðið og þá kemst maður fyrst í jólaskapið... hehe...
en gangi öllum vel í þeim prófum sem eftir eru og gleðileg jól allir saman...
Kristín Lilja
P.S. Ég féll ekki í Stærðfræði 103 og ég er ekkert smá stolt... stæ er ekki mín sterka hlið...
03desember
....já og talndi um að nenna, þá nenni ég alls ekki í prófin sem byrja á mánudaginn. Ég er samt mjög sátt við að taka bara 3 próf... þá verður þetta búin að engri stundu og þá tekur við hið langþráða jólafrí, jej.
En ég ætla að reyna að taka mig saman í andlitinu í þessu bloggveseni, og er búin að setja inn nokkur stykki myndir af skímóballinu um síðustu helgi.
En þar sem að núna er framorðið og ég ætti að fara að leggja mig svo ég geti farið snemma að sofa snemma annað kveld, og vaknað hress í fyrsta prófið.
góða nótt... og gleðilega aðventu....
Kristín, Ofurbloggari..... (hummm)
01nóvember
hæhæ.. jæja ég hef nú ferðast landshornanna á milli í þeim tilgangi að hitta mínar elskulegu vinkonur, Jónínu og Guðrúnu Hildi. Þvi er skemmst að segja frá að ferðin gekk frábærlega og skemmti ég mér til hins ýtrasta.
Ferðin hófst á fimmtudaginn, ég átti flug kl. 19:15 og "skutlaðist" mamma með mig í bæinn til að ná flugvélinni, ekki vildi betur til en svo að á leiðinni var versti vetur og ófærð og keyrðum við kellingarnar á 40 alla leið í höfuðborgina. Sem betur fer höfðum við lagt tímanlega af stað og ég kom stundvíslega á flugvöllinn. Eftir þetta stutta en þó óþæginlega flug kom jónína að sækja mig á flugvöllinn, við fórum heim í fallegu, litlu íbúðina hennar og þar skiptust við á slúðri þar sem við höfðum ekki séð hvor aðra um hríð. Kl. 10 kom svo Guðrún Hildur og þá voru sko fagnaðarfundir.
Á Föstudeginum voru svo stelpurnar svo auðvitað í skólanum svo ég tók mig til og las svotil hálfa danska glæpasögu, og er mjög stolt af sjálfri mér. Þegar þær svo komu heim skelltum við okkur á kaffihús og röltum um miðbæinn. Um kvöldið fórum við Jónína og eyddum okkar dýrmætu peningum í Bíoferð, Við sáum Mýrina og var hún alveg frábær og tólfhundruðkallsins virði. eftir það skelltum við okkur í smá samkomu til Guðrúnar. Þar var kominn saman nokkuð stór hópur fólks og allir skemmtu sér ágætlega. Við skelltum okkur aðeins niður í bæ en þar sem eg er svo ung komust við náttúrulega ekkert á skemmtistaðina og fórum bara snemma heim.
Daginn eftir svaf ég lengi, miklu lengur en jónína, þegar eg svo vaknaði biðum við bara í rólegheitunum eftir því að Guðrún væri búin í vinnunni . Þegar hún svo loksins kom skelltum við okkur í sund og var það mjög hressandi. Eftir það fór hún Jónína að læra og svo ég truflaði hana ekki fór ég með Guggu. Við borðuðum brauðstangir og vorum samúðarþunnar með sóleyju, við gerðum nú mest lítið nema að ég fékk LEVI'S buxurnar mínar aftur og mér til mikillar undunnar og gleði smellpössuðu þær. Þegar líða tók að kvöldmat LABBAÐI ég heim til Jónínu, ég rataði á Akureyri. (stolt) Hildur Ása hafði boðið okkur í mat og eldaði hún handa okkur dýrindis lasange og við spjölluðum um hitt og þetta... Ég og Jónína vorum alveg uppgefnar og smitðuðum alla í kring um okkur af þreytu . þannig að það varð voða lítið úr þessu kvöldi
Á sunnudeginum svaf ég svo ennþá lengur... en þegar ég loksins vaknaði skelltum við okkur á skauta, ég, jónína og Brynjar. Það var nú alveg prýðilegt utan þess að skautarnir sem ég var á voru eitthvað aðeins of gamlir held ég og ég gat því miður ekki sýnt heiminum listir mínar á skautum. Eftir það röltum við Jónína niður í bæ fengum okkur köku og leigðum tvær stelpumyndir og keyptum tonn af nammi. Þegar Við komum heim var brynjar með einhvern mórl og skipaði okkur að elda. við skelltum fram gómsætri pítsu og allir voru sátti og saddir. Svo hlunkuðum við okkur upp í rúm hjá brynjari með allt nammið og horfðum á myndina. Hún var alveg ágæt... samt ekki nógu mikið af sætum náungum...
máudagurinn fór nú bara í að pakka saman og gera allt reddý fyrir heimferðina. kl. 2 fór ég svo útá flugvöll og komst að því að fluginu hafði verið seinkað til 3 og ég þurfti að hanga þarna alveg heillengi. Þessi dagur fór nú eginlega bara í að ferðast annað hvort í flugvél, leigubíl, strætó eða rútu. En þegar ég loksins kom heim, var ég fegnari en allt og hoppaði beint í nýbakaða pítsu og fínerí.
þessi helgi var alveg frábær.... Kristín Lilja...
23október
Þessi helgi var frekar viðburðarrík miðað við síðustu helgi...
Á föstudaginn var kórinn með tónleika á Hvolsvelli og var ég búin að semja við Hrafnhildi um að ég fengi far hjá henni. Við mældum okkur mót í FSu kl.6 og þegar ég kom þar ákkúrat á slaginum var Hrafnhildur hvergi sjáanleg, en aftur á móti var Marsibil þar og hún sagði mér að hoppa uppí og við lögðum af stað. Þegar ég svo kem á Hvolsvöll var allt í uppnámi því ég hafði víst skilið síman efri á silent og höfðu Hrafnhildur og Sara rúntað um Selfoss í hálftíma, hringjandi í alla, alveg á panikkinu " við erum búnar að týna sólóistanum!" En sem betur fer fór allt vel og alir eru heilir að höldnu... nema kannski Hrafnhildur sem borðaði aðeins of mikið af kaffibaunum! en hvað sem því líður gengu tónleikarnir á föstudaginn og sömuleiðis tóneikarnir á Selfossi á laugardaginn alveg eins og í sögu... nema hvað þá helst að það voru engin ljós á tónleikunum á laugardaginn sem byrjuðu kl. 5. Og það vildi ekki betur til en svo að þegar leið á tónleikana dimmdi úti, og sömuleiðis inni þar sem húsið er úr gleri, og á endanum vorum við hætt að sjá nóturnar...
Um laugardagskvöldið fór ég svo í afmæli hjá henni Anítu, TIL HAMINGU ELSKAN MÍN, og þar var sko fjör. Atli tók sig til og dansði eins og brjálæðingur við spice girls og ég tók eitt af mínum frægu athyglissýkisköstum... en það var bara gaman, þó það hefði nú líka verið gaman að fara á Reiðhallarball, en ég er svo litil og hefði nú líklegast ekki kominst inn...
Dagurinn í dag fór svo bara í það að lesa Sölku Völku Halldórs Laxness og vera í engum nærfötum...
Ég er nú líka farin að verða svolítið spennt fyrir Akureyrarförinni minni í vetrarfríinu...
Kristín Lilja...
22október
Ég er búin að vera alveg ótrúlega dugleg að setja inn myndir hérna.... endilega kíkiði...
Kristín Lilja...
21október
Kæru landsmenn...
Þá er komið að því, ég hef gengist aftur í bloggsamfélagið. Ég, sem hef ekki gerst svo fræg að blogga síðan á gullaldarárum gelgunnar, hef snúið aftur ný og betri manneskja og hef nú ætlað mér að halda hér uppi bloggi sem allir gætu mögulega haft gagn og gaman af.
Margt hefur á daga mína drifið síðan að ég bloggaði síðast og má þar helst nefna að eg þroskaðist og hóf nám við Fjölbraut á Selfossi og hef nú loks verið samþykkt þar af eldri nemendum sem uppfylltu minn æðsta draum, hentu í mig eggjum og lýsi undir herópum um að eg lyktaði illa og ætti ekki skilið að lifa, en hvað er saklaust grín milli vina. Einnig tókst mér loksins að draga mína elskulegu foreldra aðeins nær siðmenningunni í Reykjavíkinni, þar sem fjölskylda mín flutti búferlum frá Vík í Mýrdal til Þorlákshafnar í sumar, þar sem við festum kaup á alveg ynislegu húsi.
Eins og þið heyrið hefur líf mitt snúsit 180° upp á síðkastið en allt er breytingum háð og ég er mjög ánægð og sátt með tilveruna. Ég vona að aðeins fleiri sjái sér fært að lesa þetta blogg en síðast þegar ég reyndi og vona að allir hafi gaman af.
Kristín kveður...